Sameiginlegur félagsfundur JCI Reykjavík, JCI Lind og JCI Esja

Fimmtudaginn 18.mars næstkomandi verður félagsfundur JCI Esju, Lindar og Reykjavíkur haldinn í Sjálfstæðissalnum í Kópavogi, Hlíðarsmára 19.  Fundurinn hefst kl:20:00 og er öllum opinn meðan að húsrúm leyfir.

Gestur fundarins verður Jón Gerald Sullenberger kaupmaður í Kosti,  Jón mun segja fundarmönnum frá því hvernig það er að byggja upp fyrirtæki í því viðskiptaumhverfi sem ríkir á Íslandi í dag.

Rauðvín, Ostar og Ljóð

Næstkomandi laugardag, 27.feb, bjóðum við til veislukvölds þar sem í hávegum verður gott fólk – góð vín – góðir ostar og ljóð í uppáhaldi.

Rauðvín, Ostar og Ljóð er veislukvöld sem JCI Reykjavík hefur staðið fyrir með árlegum hætti og markmiðið hefur ávallt verið það sama – að sameina í eina kvöldstund áhugafólk um vín, osta og ljóð.

Hver veit svo nema einnig komi sérstakur gestur og fræði okkur um heima víns og vínmenningar.

Fyrirkomulag að þessu sinni er einfalt – JCI Reykjavík mun bjóða uppá veglega ostabakka og allir koma með flösku af uppáhalds rauðvíninu sínu með sér.

Allir koma einnig með 1-2 ljóð með sér og gestir munu svo skemmta gestum með því að flytja fyrir hvort annað ljóð.

Veislan fer fram í JCI húsinu, Hellusundi 3 og opnar húsið 20:30

Hlökkum til að sjá sem flest áhugafólk um góð vín, góðan félagsskap og góða skemmtun.

JCI Reykjavík

Félagsfundur – Þriðjudagur 2.feb kl 20:00

Hvernig á ungt fólk að hafa áhrif á “nýja” Íslandi?

“Ungt fólk til áhrifa” er þemað fyrir félagsfundi JCI Reykjavíkur á þessu starfsári.  Á hverjum félagsfundi verður flutt fróðlegt erindi útfrá þessu þema og hefjum við leikinn 2. feb með Jónas B. Antonsson sem gest fundarins.

Jónas er ungur maður sem hefur verið að búa til nýjar bylgjur í heimi sprotafyrirtækja, tölvuleikjaiðnaðar og þeirri hugmyndaflóru sem hefur verið einkennandi fyrir Ísland og íslendinga frá því eftir hrun bankanna.

Jónas er einn stofnenda tölvuleikjafyrirtækisins GoGogic sem hefur verið að gera afar áhugaverða hluti í tölvuleikjaheiminum og var einn fyrirlesara á nýafstaðinni TEDxReykjavík ráðstefnu. Flutti þar geysilega vinsælt erindi sem náði m.a. yfir sköpunargleði, líf og dauða, og hvernig á að sigra heiminn.

Jónas er frábært dæmi um ungan einstakling sem er að hafa áhrif bæði á fólk og viðburði á “nýja” Íslandi og okkur í JCI Reykjavík er sannur heiður að fá hann sem gest okkar.

Fundurinn fer fram í JCI húsinu – Hellusundi 3, 101 R.vik

Félagsfundur fyrir félagsmenn hefst kl 20:00, með hefðbundnum fundarstörfum.

Gestur fundarins stígur svo á stokk kl 20:30  og eru allir áhugasamir velkomnir.

Kaffi og veitingar eru í boði félagsins.

Kjörfundur og Aðalfundur í næstu viku – 19.jan

Næstkomandi þriðjudagskvöld, 19.janúar boðar JCI Reykjavík félagsmenn til Kjörfundar og Aðalfundar 2010.

Fundirnir fara fram í JCI húsinu, Hellusundi 3 og hefjast á Kjörfundi, kl 20:00.

Listin að kynna – námskeið fyrir háskólanema!

Framundan er vertíð kynninga fyrir háskólanema á Íslandi, bæði kynningar á almennum verkefnum sem og lokaverkefnum og ritgerðum.

Undanfarin ár hefur JCI Reykjavík boðið háskólanemum uppá námskeið í að flytja ræður og kynningar og flestir af þáttakendum hafa skráð sig af einni ástæðu – kvíði og stress fyrir að flytja lokaverkefnið sitt eða kynna mikilvægt verkefni sem vegur þungt í áfangaeinkunn.

JCI Reykjavík hefur mun næstu 3 mánudagskvöld (23 og 30.nóv ásamt 7.desember) bjóða uppá kvöldnámskeiðið “Listin að Kynna!” – námskeið sem er hannað fyrir þarfir upptekinna háskólanema sem eru á lokasprettinum að undirbúa vörn á lokaverkefninu sínu eða að leggja lokahönd á mikilvægt verkefni.   Námskeiðið fer yfir ýmis hagnýt og praktísk ráð ásamt verklegum æfingum sem hafa það markmið að kynningar nemenda verði kraftmiklar, áhugaverðar, markvissar og fyrst og fremst eftirminnilegar.

Nánari upplýsingar og skráningar hér!

Kynningarfundur – lýsum eftir kláru, jákvæðu og hugmyndaríku fólki!

learning_logoNæstkomandi miðvikudag 4 nóv, og fimmtudag 5 nóv býður JCI Reykjavík til opinna kynningarfunda á veitingastaðnum Eldhrímni í Borgartúni 16 (nýji glerturninn).

Kynnt verður stuttlega JCI hreyfingin, farið verður í fróðlegan leik til að sýna fram á árangur hóps vs. einstaklingsvinnu, kynnt verða námskeið sem JCI hefur uppá að bjóða fyrir félagsmenn og kynnt verður stuttlega félagið JCI Reykjavík.

Næsta ár 2010 verður bæði ögrandi og erfitt, spennandi og skemmtilegt. Fyrir Ísland sem land og okkur sem hér búum persónulega. Við erum öll meðvituð um nauðsyn þess að efla okkur, mennta okkur, virkja betur hugmyndir okkar og hæfileika… sérstaklega á þessum tímum.

Við í JCI Reykjavík ætlum að vera jákvætt afl og taka þátt í að gera ungu fólki á Íslandi þetta kleift, með praktísku félagsstarfi sem kennir gagnlega hluti… strax!

Á dagskrá fyrir 2010 er að standa fyrir fróðlegum erindum, áhugaverðum viðburðum, praktískum og gagnlegum námskeiðum, verkefnum sem hafa jákvæð áhrif á samfélagið og þetta gerum við allt í gegnum uppbyggilegt og áhugavert félagsstarf þar sem margar hendur vinna léttari verk.

Ekkert af þessu er mögulegt án félagsmanna sem eru reiðubúnir að starfa að þessum hlutum saman og á þessum tímapunkti viljum við bjóða áhugasömum og áhugaverðum einstaklingum til samstarfs í félagið okkar.

Við hlökkum til að taka á móti ykkur, fá að kynnast ykkur og kynna okkur næstkomandi miðvikudags- og fimmtudagskvöld.

Fundirnir hefjast báðir kl 20:15 og eru báðir með eins sniði.  Allir eru boðnir velkomnir á það kvöld sem betur hentar.  Kaffi í boði félagsins.

Stjórn JCI Reykjavíkur.

JCI verðlaunar framúrskarandi unga íslendinga

pallur

Toyp verðlaunin eru afhent af JCI á hverju ári og eru verðlaun sem JCI veitir áheimsvísu. JCI Ísland útnefnir á hverju ári þáttakendur í keppnina og veitir þeim verðlaun.

Nafn keppninnar hefur verið þýtt á íslensku sem framúrskarandi ungir íslendingar.

Verðlaunaafhending framúrskarandi ungra íslendinga verður haldin fimmtudaginn 5. nóvember nk. kl 17:25 í Hugmyndahúsi Háskólanna að Grandagarði 2, 101 Reykjavík.

Vonumst til að sjá sem flesta JCI félaga og senatora, velkomið að taka með gesti.

Heimsókn heimsforseta JCI

Nýlega heimsótti okkur heimsforseti JCI, en JCI Ísland fær heimsforseta til landsins annað til þriðja hvert ár. Að þessu sinni er heimsforsti frá Suður-Kóreu og var afar áhugavert að kynnast sjónarhorni frá þeim hluta heimsins.

Heimsforseti tjáði okkur að hann hafi sérstaklega ákveðið að heimsækja Ísland með það í huga að hvetja okkur áfram við þær fjárhagslegu aðstæður sem Ísland berst við, en S-Kórea upplifði sambærilega kreppu fyrir um áratug síðan og þurfti meðal annars að fara undir stjórn IMF.

Haldinn var fundur á kaffi Amokka í Kópavogi miðvikudaginn 7.október og var hann bæði fjölsóttur og áhugaverður.  Við þetta tækifæri gengu 2 nýjir félagsmenn til liðs við JCI GK.

Nýr vefur tekinn í gagnið

Verið velkomin á nýjan vef  JCI Reykjavíkur.

Vefurinn mun taka hröðum breytingum næstu daga og vikur þegar færðar verða inn ýmislegar upplýsingar en nú þegar er komin góð heildarmynd og við erum byrjuð að kynna til leiks bæði viðburði framundan og nýliðna viðburði.

Allar tillögur og ábendingar eru vel þegnar, sendist á jcireykjavik@jcireykjavik.is


Designed by: Business Web Hosting | Thanks to Buy Icons, travel tips and Used Cars