Námskeið

JCI Reykjavík og önnur aðildarfélög JCI Íslands standa reglulega fyrir fjölbreyttum námskeiðum fyrir félagsmenn sína, þeim að kostnaðarlausu.

JCI Ísland býður einnig öðrum félagasamtökum og fyrirtækjum þátttöku á námskeiðum, en þá eru námskeiðin aðlöguð með þarfir og áherslur þátttakenda í huga. Námskeið JCI eru fyrst og fremst praktísk og takmarkið er að hvert námskeið blandi saman fræðslu og vinnustofu  ásamt skemmtigildi.

Áhugasamir um námskeið fyrir hópa geta sent fyrispurn á namskeid@jcireykjavik.is eða hafið símasamband við Helga Guðmundsson í síma 868-1057

Hér má finna lista yfir helstu námskeið í boði fyrir félagsmenn:

_____

Listin að Kynna

Flutningur á kynningum er orðinn hluti af tilveru okkar flestra. Við þurfum ítrekað að flytja kynningar á vinnufundum, á vinnustað, í félagsstarfi, verkefniskynningar í námi, varnir á lokaverkefnum, sölukynningar, kynningar á hugmyndum, kynningar á ráðstefnum og kynningar á viðskiptahugmyndum. Listinn heldur áfram.

Á þessu námskeiði er farið í öll helstu grunnatriði flottrar kynningar.

  • Undirbúning
  • Flutning – Klæðaburð, framkomu og tjáningu, fyrirspurnir úr sal
  • Lykilatriði í hönnun kynninga
  • Meðferð hjálpargagna og tölvutækni
    • Notkun slæðuforrita
    • Notkun á hljóðnemum og fjarstýringum
  • það að hafa ávallt plan B ef tæknin klikkar.

Þáttakendur undirbúa á þessum 3 kvöldum 2 heilar kynningar sem fluttar eru innan hópsins og hver þáttakandi fær leiðsögn og endurgjöf um persónulegan flutning, stíl og hönnun á framsetningu.

Æskilegur fjöldi þátttakenda er 8 – 10.

** Einnig er í boði námskeið sem er 1 skipti og er ætlað fyrir vana ræðumenn eða sem kynning/inngangur að stærra námskeiðinu.  Þetta styttra námskeið er hægt að halda fyrir stærri hópa (12-20 þáttakendur).

Um er að ræða 2-3 klst fyrirlestur ásamt verklegum æfingum sem veitir yfirsýn og fræðslu um ofangreind atriði og kveikir hugmyndir um hönnun hjá þáttakendum.

_____

Ræða 1

Stór hluti einstaklinga finnst gífurlega erfitt og stressandi að taka til máls fyrir hóp af fólki, hvort heldur sem er að taka til máls á vinnufundum, halda tækifærisræðu, eða jafnvel bara að standa upp og kynna sig og sínar hugmyndir.

Ræða 1 er yfirgripsmikið 6 vikna grunnnámskeið í ræðumennsku þar sem þáttakendur læra að undirbúa sig fyrir m.a. tækifærisræður, mótmælaræður, hvatningaræður, söluræðu og kappræðu. Hver þáttakandi fær leiðsögn og endurgjöf í þeim lykilatriðum framkomu og tjáningu sem fylgir hverju þessara tilefna.

Námskeiðið er vinnustofa sem byggist á virkri þáttöku og er eitt öflugasta sjálfsræktarnámskeið sem JCI stendur fyrir.  Án undantekninga upplifa þáttakendur gífurlega aukningu á sjálfstrausti, færni í samskiptum og almennu öryggi við að tjá sig.

Námskeiðið eru 6 skipti – fjöldi í hóp er 8-10 þáttakendur.

_____

Árangursrík teymi

Hvernig er hægt að setja saman hóp sem skilar árangri og nær að vinna vel saman? Þetta er spurning sem margur stjórnandinn hefur velt fyrir sér.

Hópastarf, eða teymisvinna, er orðin gífurlega algeng aðferðarfræði í öllu námi og innan fjölmargra fyrirtækja. Hópastarf er í hugum margra töfralausn sem getur leyst flest vandamál.

Þó er hópastarf gífurlega misskilið. Fæst okkar hafa fengið hagnýta leiðsögn í hvernig það getur virkar sem best. Fyrir vikið hafa margir mjög blendnar tilfinningar til hópastarfs og mörg okkar beinlínis upplifa það sem sóun á tíma og orku.

Á þessu námskeiði er farið í gegnum þau 5 atriði sem skemma fyrir flestu hópastarfi – en eru jafnframt 5 þrep að gífurlega áranguríkum teymum séu þau hagnýtt á réttan hátt!

Námskeiðið er 1 kvöld eða 3 klst – fjöldi þátttakenda er 8-16 manns.

_____

Skilvirkir fundir:

Fundir.  Þetta orð vekur upp blendnar tilfinningar.  Annarsvegar þá verður lítið úr framkvæmdum í fyrirtækjum, félagslegum hreyfingum og verkefnahópum án þess að hittast, koma upp með hugmyndir, skipta verkum og samræma vinnu hvers og eins.

Hinsvegar er upplifun langflestra af fundum sú að þeir taka of langan tíma, það vantar oftar en ekki skipulag, þeir eru óskilvirkir… of mikið mas og of lítið sem gerist í framhaldi.

Skilvirkir fundir er 2-3 klst námskeið þar sem farið yfir yfir hagnýt ráð og aðferðir til að gera nefndarfundi, félagsfundi og stjórnarfundi vel skipulagða, skilvirka og ritaða. Farið er yfir stjórnun slíkra funda og hvernig útbúin er einföld dagskrá.

Námskeiðið er 1 kvöld eða 2-3 klst – fjöldi þátttakenda er 6 – 12 manns

______



Designed by: Business Web Hosting | Thanks to Buy Icons, travel tips and Used Cars