Um félagið

JCI Reykjavík er aðildarfélag að JCI Íslandi og er elsta starfandi félagið. Félagið er jafnframt hluti að alþjóðlegu JCI hreyfingunni og því í hópi yfir 4700 aðildarfélaga með starfsemi í 115 löndum.

Undirstaðan í starfi félagsins er að bjóða uppá sem fjölbreyttust tækifæri til að byggja upp sjálfstraust og færni einstaklinga.

Markmið okkar er að gefa félögum okkar kost á að vaxa og taka framförum í gegnum hagnýtt, áhugavert félagsstarf og geta haft jákvæð áhrif á samfélagið sitt.

Praktísk reynslu í félagslegum störfum, skipulagning og utanumhald á verkefnum, vinna í hópum, þjálfun í framkomu & tjáningu og stjórnun á fólki er meðal þeirra tækifæra sem í boði eru.

Félagar okkar eru fólk á aldri 18–40 ára og koma frá ólíkum sviðum samfélagsins.  Má þar nefna viðskiptafræðinga, verkfræðinga, skrifstofufólk, háskólanema, fólk í eigin atvinnu­rekstri og iðnaðarmenn.

Í JCI starfi leggjum við ríka áherslu á að einstaklingar með litla reynslu öðlist reynslu hratt, að einstaklingar án þekkingar fái þekkingu sem fyrst.  Öflugt námskeiðshald og lærdómur gegnum verkefni er lykilinn.  Ennfremur höfum við 1.árs reglu á öll helstu embætti í stjórnun félagsins.  Það er, enginn á að gegna embætti oftar en einu sinni, og aðeins til eins árs.

Í starfinu tökum við ekki tillit til trúarlegrar afstöðu né pólitískrar, og forðumst nær alfarið að snerta á þeim málefnum með beinum hætti.


Designed by: Business Web Hosting | Thanks to Buy Icons, travel tips and Used Cars