Framundan

Nú er nýliðaferli JCI Reykjavíkur nýlokið þar sem glæsilegur 13 manna hópur gerðust nýliðar og fóru gegnum námskeið í árangursríku hópastarfi, skilvirkum fundum, og skipulagningu viðburða.

Næstkomandi fimmtudag (20.maí) verður einn af leiðbeinendum JCI Reykjavíkur (Helgi I. Guðmundsson) með nýtt námskeið – “Grípandi Sögur” – á fimmtudagsfræðslunni sem boðið er uppá á vegum JCI Íslands. Opið öllum, er í boði JCI Íslands og allir velkomnir (sjá nánar á forsíðu).

Á næstu vikum munum við bjóða uppá námskeiðið “Ræða 1″.  Þetta er námskeið sem þjálfar þáttakendur í flutningi á ræðum við ýmis tilefni – meðal ræðforma sem æfð eru á námskeiðinu eru:

  • Ræða um efni að eigin vali
  • Tækifærisræða
  • Mótmælaræða
  • Söluræða
  • Rökræða

Námskeiðið krefst a.m.k. 10 þáttakenda og er opið fyrir skráningar.  Fyrir JCI félaga er námskeiðið innifalið í aðild, fyrir aðra áhugasama þá er verð 15.000.-  Ef áhugi er fyrir þáttöku má senda fyrirspurn / skráningu á netfangið namskeid@jcireykjavik.is

____

Næsta nýliðaferli hefst hjá okkur í haust – ef áhugi er fyrir að kynna sér félagsaðild þá er það sáraeinfalt… sendið okkur tölvupóst á jcireykjavik@jcireykjavik.is og við munum hafa samband um hæl.  Allir sem eru á aldri 18-40 ára geta orðið félagar, ekki gleyma að tiltaka fullt nafn, gsm síma og tölvupóst.


Designed by: Business Web Hosting | Thanks to Buy Icons, travel tips and Used Cars