Félagsfundur – Þriðjudagur 2.feb kl 20:00

Hvernig á ungt fólk að hafa áhrif á “nýja” Íslandi?

“Ungt fólk til áhrifa” er þemað fyrir félagsfundi JCI Reykjavíkur á þessu starfsári.  Á hverjum félagsfundi verður flutt fróðlegt erindi útfrá þessu þema og hefjum við leikinn 2. feb með Jónas B. Antonsson sem gest fundarins.

Jónas er ungur maður sem hefur verið að búa til nýjar bylgjur í heimi sprotafyrirtækja, tölvuleikjaiðnaðar og þeirri hugmyndaflóru sem hefur verið einkennandi fyrir Ísland og íslendinga frá því eftir hrun bankanna.

Jónas er einn stofnenda tölvuleikjafyrirtækisins GoGogic sem hefur verið að gera afar áhugaverða hluti í tölvuleikjaheiminum og var einn fyrirlesara á nýafstaðinni TEDxReykjavík ráðstefnu. Flutti þar geysilega vinsælt erindi sem náði m.a. yfir sköpunargleði, líf og dauða, og hvernig á að sigra heiminn.

Jónas er frábært dæmi um ungan einstakling sem er að hafa áhrif bæði á fólk og viðburði á “nýja” Íslandi og okkur í JCI Reykjavík er sannur heiður að fá hann sem gest okkar.

Fundurinn fer fram í JCI húsinu – Hellusundi 3, 101 R.vik

Félagsfundur fyrir félagsmenn hefst kl 20:00, með hefðbundnum fundarstörfum.

Gestur fundarins stígur svo á stokk kl 20:30  og eru allir áhugasamir velkomnir.

Kaffi og veitingar eru í boði félagsins.

You can leave a response, or trackback from your own site.

Leave a Reply


Designed by: Business Web Hosting | Thanks to Buy Icons, travel tips and Used Cars