Fimmtudagsfræðslan 20.maí: Námskeiðið "Grípandi Sögur"

Hvað er það sem aðgreinir eftirminnilega brandara, tilvitnanir, málshætti, auglýsingar, bíómyndir, þætti, fyrirlestra, bækur, ræður og kynningar frá öðrum sem falla fljótt í gleymsku?

Svarið er einfaldlega… grípandi saga, sögð á eftirminnilegan hátt.

Hvað er það sem gerir sögur grípandi, eftirminnilegar? Er það tilviljun?

Eða er um að ræða uppskrft sem gott sögufólk kann og beitir á áhrifaríkan hátt?

Sögur, sögumennska er elsta kennslutæki mannkynsins, notaðar af foreldrum, ömmum og öfum, kennurum, stjórnendum og leiðtogum af öllu tagi. Sögur hafa gagnast í þúsundir ára til að kenna okkur hegðun, viðhorf, siðferði, að kljást við áskoranir, leysa vandamál… listinn er langur. Sögur skemmta okkur á góðum augnablikum, beina okkur frá slæmum ákvörðunum og forða mistökum… rétt saga á réttu augnabliki getur verið vendipunktur í lífi okkar allra.

Flest okkar upplifa þó þessa tilhugsun… “en ég er engin sögumanneskja”.

Af hverju ekki þú? Enginn upplifir augnablik, viðburði, samtöl eins og þú. Enginn getur tjáð þína innsýn betur en þú.

Grípandi Sögur er námskeið sem hefur einfalt markmið – að efla og leysa úr læðingi sögumanneskjuna þig!

Á námskeiðinu er farið yfir uppskriftina sem gerir sögu grípandi eða ekki – farið er í algeng söguþemu og hvernig við getum gripið á lofti atvik og viðburði úr okkar eigin umhverfi og nýtt sem söguefni í frábærar, grípandi og eftirminnilegar sögur… okkar eigin sögur.

Námskeiðið er fyrir alla sem þurfa að kenna eða leiða fólk, halda kynningar og ræður, ásamt alla sem vilja einfaldlega verða betri og skemmtilegri í mannlegum samskiptum.

Leiðbeinandi er Helgi I. Guðmundsson, CNT leiðbeinandi í JCI Reykjavík.

Námskeiðið er opið fyrir JCI félaga og gesti – hefst kl 20:00 og er um 2 klst.

Hægt er að melda sig á facebook

You can leave a response, or trackback from your own site.

Leave a Reply


Designed by: Business Web Hosting | Thanks to Buy Icons, travel tips and Used Cars