Fimmtudaginn 13. maí (uppstigningardag) er fyrirhuguð hellaskoðunarferð með leiðsögumanni í Leiðarenda á Reykjanesskaga.
Allir félagsmenn velkomnir, ásamt vinum og ættingjum. Áætlað er að hittast fyrir framan JCI húsið í hellusundi kl. 10:45, en þaðan verður farið með rútu.
Eftir hellaskoðunina munum við grilla saman í Heiðmörk. JCI Reykjavik býður uppá pulsur, hamborgara og gos. Ef vilji er fyrir áfengari drykk eða flottara hráefni á grillið þá er velkomið að taka með sér.
Fatnaður: Hlýr útivistarfatnaður, vettlingar, húfa, ásamt hlífðarfatnaði og góðum skóm.
Kostnaður: 3000,- kr. á mann (innifalið er rútuferð, leiðsögumaður og hellabúnaður). Vinsamlega hafa pening tilbúinn til að borga á staðnum.
Áætluð lengd ferðar: 5 – 6 klst
Skráning: emmarun1@gmail.com (fyrir lau 8. maí)

May 4th, 2010
helgigud
Posted in 
Loading...