Næstkomandi þriðjudagskvöld, 20.apríl, standa félögin JCI Reykjavík, JCI Lind og JCI Esja að félagsfundi.

Gestur fundarins er hinn ungi og spræki frumkvöðull Gunnar Hólmsteinn, einn stofnenda og forsvarsmanna Clara ehf, íslensks sprotafyrirtækis sem er að leiða inn mjög ferskar og spennandi nýjungar á sviði markaðsrannsókna á vefnum. (www.clara.is)
Fyrirtækið varð til uppúr þáttöku Gunnars og félaga í keppni Innovit um bestu viðskiptaáætlun fyrir nokkrum árum þar sem þeir höfnuðu í 2.sæti.
Clara ehf hefur verið mjög áberandi í umfjöllun um ung íslensk fyrirtæki og Gunnar sjálfur mjög sjáanlegur, meðal annars komið fram í Kastljósi og á öðrum vettvangi. Hann mun fræða okkur um fyrirtækið og starfsemi í því viðskiptaumhverfi sem Ísland býður uppá í dag. Einnig mun hann deila með okkur persónulegum hugmyndum og skoðunum um tækifæri ungs fólks í dag og hvernig ungt fólk getur haft meiri áhrif á samfélagið.
Fundurinn hefst kl 20:00 og fer fram á efri hæð veitingastaðarins Balthazar (gamli Kaffi Viktor – www.baltazar.is).
Kaffi verður í boði fyrir gesti.
Sjáumst hress og tímanlega.
Nefndin.

April 14th, 2010
helgigud
Posted in 
Loading...