Fimmtudagsfræðsla: Að laða fram það besta úr fólki

Næstkomandi fimmtudagskvöld er að venju fimmtudagsfræðslan, í boði JCI Íslands.

Að þessu sinni er boðið uppá leiðtoganámskeiðið:

Að laða fram það besta úr fólki: Listin að leiða með hvatningu í stað vogarafls.”

Námskeiðslýsing:

Leiðtogi.  Þetta er hugtak sem við höfum öll skoðun á, höfum öll upplifað og höfum öll hugmyndir um góða og slæma leiðtoga.  Sum þekkja þetta hlutverk, sum okkar hlakkar til að tækla þetta hlutverk en aðrir fyllast kvíða og forðast það með öllum tiltækum ráðum.

Hvað einkennir mismunandi leiðtoga, mismunandi leiðtogastíla? Hver er munurinn á að leiða með skipunum (vogarafli) eða með hvatningu og virðingu?

Er þetta færni sem hægt er að læra og þjálfa sig í?  Geta allir orðið áhrifaríkir leiðtogar?

Svarið er já.

Námskeiðið er blanda af fyrirlestri og vinnustofu þar sem lærdómsmarkmið eru:

  1. Dýpri skilning á hugtakinu leiðtogi
  2. Innsýn í eigin leiðtogastíl
  3. Betri aðlögunarhæfni gagnvart ólíku fólki
  4. Að þáttakendur öðlist grunninn að þeirri færni að laða fram það besta úr hverjum og einum.

Námskeiðið fer fram í JCI húsinu, Hellusundi 3 og hefst kl 20:15 (til 22:00)
Leiðbeinandi er Helgi I. Guðmundsson, CNT leiðbeinandi.

__
Fimmtudagsfræðslan eru mánaðarleg námskeið annan og fjórða fimmtudag hvers mánaðar. Námskeiðin eru opin öllum og öllum að kostnaðarlausu. Tilvalið er að grípa með sér gest / gesti – allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir.
You can leave a response, or trackback from your own site.

Leave a Reply


Designed by: Business Web Hosting | Thanks to Buy Icons, travel tips and Used Cars