Næstkomandi fimmtudag (8.apríl) býðst félögum og áhugasömum um félagsstarfið skemmtilegt námskeið.
Nýliðanámskeiðið “Árangursríkt hópastarf “ hefst kl 17:30 og er til 19:30. Þetta námskeið er annað skipti af fjögurra skrefa nýliðaferli sem nýlega hófst á vegum félagsins – námskeiðið fer í gegnum 5 þrepa ferli til að umbreyta hópi í einbeitt og árangursríkt teymi. Námskeiðið er haldið í JCI húsinu, Hellusundi 3 (101 R.vik).
Að þessu námskeiði loknu eru á dagskrá þriðja námskeiðið – “Skilvirkir fundir” – fimmtudaginn 15.apríl og endað verður á námskeiðinu “Að skipuleggja viðburði” föstudaginn 23.apríl. Jafnframt verður þá inntaka nýliða.
Þessi námskeið eru öll opin áhugasömum um félagsstarfið og að gerast félagsmenn – eina skilyrðið er að vera á aldrinum 18-40 ára. Einfalt er að óska eftir að bætast í hópinn – sendið okkur tölvupóst á netfangið namskeid@jcireykjavik.is – tiltakið fullt nafn og síma ásamt megin áhugasviði.

April 4th, 2010
helgigud
Posted in 
Loading...