Fimmtudagsfræðsla: Skapandi sambönd og samskipti

Fimmtudaginn 28. apríl, verður fræðslukvöld um skapandi sambönd og samskipti í Hellusundi 3. Arnór Már Másson ACC markþjálfi, verður með þessa fimmtudagsfræðslu. Hann mun nota spennandi og skemmtilegar aðferðir til að fá fram raunverulegum verðmætum sem eru innra með þér og virkjar þig til að beina þeim í farveg sem skilar þér árangri.

Arnór Már er stofnandi og eigandi AM markþjálfunar: http://www.markthjalfi.is/

Hann hefur lokið þjálfun hjá Leiðtoga ehf. sem uppfylla grunnskilyrði til Associated Certifed Coach vottunnar hjá International Coach Federation.

Félagsfundur: Þorvaldur Þorsteinsson rithöfundur og myndlistarmaður

Næsti félagsfundur verður haldinn þriðjudaginn 12. apríl klukkan 20.00 í félagsmiðstöðinni Frosti (KR heimilið). Gestur fundarins verður Þorvaldur Þorsteinsson rithöfundur og myndlistarmaður.

Þorvaldur hefur skrifað leikverk fyrir leikhús, útvarp og sjónvarp. Fyrir leikritið And Björk, of course, sem hann skrifaði, hlaut hann Grímuna sem leikskáld ársins. Leikritið var einnig tilnefnt til Norrænu leikskáldaverðlaunanna og hefur það verið sýnt í Frakklandi, Belgíu, Rúmeníu og Þýskalandi. Auk þess skrifaði hann barnaleikritið Skilaboðaskjóðuna.

Bækur hans Skilaboðaskjóðan og sögurnar um Blíðfinn hafa verið gefnar út víða, meðal annars á Ítalíu, Spáni, Grikklandi, Þýskalandi og Norðurlöndunum. Fyrir fyrstu bók hans um Blíðfinn hlaut hann Barnabókaverðlaun fræðsluráðs Reykjavíkur.

Auk þess hefur Þorvaldur haldið fyrirlestur á TEDxReykjavík. Ljóst er að við eigum von á skemmtilegum félagsfundi. Félagsmönnum er velkomið að taka með sér gest á fundinn. Boðið verður upp á kaffi og kex.

Fimmtudagsfræðsla: Áhrifarík Markmiðasetning

Á fimmtudaginn kemur, 7. apríl – verður fræðslukvöld um áhrifaríka markmiðasetningu.

Færni í að setja okkur persónuleg, þýðingarmikil og áhrifarík markmið hefur lykiláhrif á framtíðarvelmegun okkar og lífsstíl.

Áhrifarík markmiðasetning er námskeið fyrir alla sem vilja öðlast grunn í þessari færni:
- móta heilbrigða og metnaðarfulla stefnu í lífinu yfir lengri tímabil
- móta uppbyggilegar venjur og hegðun sem skila okkur á kjörstað
- takast á við verkefni af mun betri skýrleika og einbeitingu
- upplifa betri uppskeru á flestum sviðum lífsins

Námskeiðið er vinnustofa og tekur um 2 klst, opin bæði JCI félögum og gestum og mun hver þáttakandi meðal annars setja sér 30-50 áhrifarík markmið, bæði til skamms tíma og til lengri tímabils.

Leiðbeinandi er Helgi I. Guðmundsson, félagsmaður JCI Reykjavík og vottaður CNT leiðbeinandi.

Námskeiðið hefst stundvíslega kl 20:05 í JCI húsinu Hellusundi 3 – skráningar eru á namskeid@jcireykjavik.is

Færni í félagsstörfum – Ungt fólk til áhrifa

ViltJCI Reykjavík - Ungt fólk til áhrifa þú…
…kynnast nýju fólki og stækka tengslanetið þitt?
…sækja fjölbreytt námskeið og viðburði?
…vera hluti af alþjóðlegri hreyfingu ungs fólks?

“Færni í félagsstörfum – Ungt fólk til áhrifa”, er nýliðanámskeið á vegum JCI Reykjavíkur. Áætlað er að námskeiðið hefjist þriðjudaginn 15. febrúar, að því skildu að lágmarks þátttaka hafi fengist.

Þetta prógramm eru fjögur skipti, c.a. 2 klst í senn og dagskráin er eftirfarandi:

- Þriðjudagur 15. febrúar, kl. 18:00 – 20:00 -> Kynning á JCI
- Þriðjudagur 22. febrúar, kl. 18:00 – 20:00 -> Áranguríkt hópastarf
- Þriðjudagur 1. mars, kl. 18:00 – 20:00 -> Skilvirkir fundir
- Föstudagur 4. mars,  kl. 20:00 – 22:00 -> Skipulagning viðburða

Námskeiðið er haldið í JCI húsinu, Hellusundi 3, 101 Rvk.
Verð: 9.000,- kr. fyrir þrjú seinni kvöldin (3.000 kr. pr kvöld). Fyrsta kvöldið er opið öllum að kostnaðarlausu.
Gjaldið gengur upp í félagsgjöld JCI Reykjavíkur ákveði þátttakandi að gerast félagsmaður að námskeiði loknu.

Skráið þátttöku á namskeid@jcireykjavik.is fyrir 13. febrúar 2011.

JCI Ísland: Gamla árið kvatt og nýju ári fagnað!

Kæru félagar
Við viljum byrja á því að óska ykkur gleðilegs árs og þakka árið sem var að líða.

Landsstjórnir JCI árið 2010 og 2011 blása til landsstjórnarskipta og verðlauna afhendinga nk. laugardag þann 8. janúar. Herlegheitin hefjast í Hellusundi kl 18:00 þar sem landsforseti 2010 býður uppá drykk jafnframt munum við þar heiðra Framúrskarandi unga Íslendinga.
Rétt fyrir 20:00 höldum við svo á Amokka í Borgartúni þar sem boðið verður uppá máltíð í spænskum anda á aðeins kr : 1950, jafnframt verður boðið uppá gott tilboð á bjór og léttu víni á barnum.
Borðhald hefst stundvíslega kl:20:11
Á Amokka ætlum við að skemmta okkur saman auk þess sem þar verða afhent verðlaun og viðurkenningar. Svo kemur að hinni hátíðlegu stund þar sem landsforseti 2011 tekur formlega við.

Skráningar í matinn sendist til arna@jci.is eða jci@jci.is ekki seinna en á hádegi fimmtudaginn 6.janúar

Sjáumst á laugardaginn

Landsstjórnir JCI Íslands
2010 og 2011

Kjörfundur JCI Reykjavíkur þriðjud. 16.nóvember

Næstkomandi þriðjdag, 16.nóvember boðar JCI Reykjavík til kjörfundar.

4 félagsmenn eru í framboði til stjórnar 2011:

  • Viktor Ómarsson til forseta
  • Emma Rún Bjarnadóttir til ritara
  • Guðrún Elka Róbertsdóttir og Magnús Ingibergsson til meðstjórnenda.

Fundurinn hefst kl 20:30, í JCI húsinu, Hellusundi 3.

Veitingar í boði viðtakandi stjórnar.

Örugg leið til árangurs – fimmtudagsfræðsla 28. október

Fimmtudagskvöldið 28. október mun Guðlaug Birna Björnsdóttir, félagi í JCI Esju sjá um fimmtudagsfræðslu JCI, sem að þessu sinni ber nafnið “Örugg leið til árangurs”.

Hvernig nær fólk árangri? Hvaða töfraformúla er það sem árangursríkt fólk notar til þess að ná jafn langt og það hefur náð?

Þátttakendum á fimmtudagsfræðslu þessa kvölds er bent á hvaða leiðir eru

færar til þess að knýja fram jákvæðar breytingar í lífi sínu, hleypa út þeirri orku sem er innra með þeim og eiga þannig bjarta framtíð fyrir höndum.

Lífið er stutt. Verum meðvituð um það og fáum sem mest út úr því!

Fimmtudagsfræðslan hefst kl. 20:00
Í JCI Húsinu, Hellusundi 3
Opið öllum meðan að húsrúm leyfir

Námskeið: Listin að Kynna

Mánudaginn 25.október stendur JCI Reykjavík fyrir námskeiðinu “Listin að Kynna” – 3 kvölda vinnustofu.

Námskeiðið þjálfar þáttakendur í undirbúningi og hönnun kynninga af ýmsu tagi og notkun ýmissar tækni sér til aðstoðar.  Ennfremur eru þáttakendur þjálfaðir í flutningi og framsögu fyrir hópa.

Námskeiðið er JCI félögum að kostnaðarlausu en kostar 15.000 fyrir aðra.  Enn er opið fyrir skráningar – til að skrá sig er sendur tölvupóstur á namskeid@jcireykjavik.is og tekið fram fullt nafn, sími og tölvupóstur.

Nýliðanámskeiði lýkur, 5 nýjir félagsmenn

Undanfarnar 3 vikur hefur JCI Reykjavík staðið fyrir nýliðanámskeiði þar sem þáttakendur fá fræðslu og æfingu í

- Árangursríku hópastarfi

- Skilvirkum fundum

- Skipulagi viðburða og verkefna

Að nýliðanámskeiði loknu gengu 5 nýjir félagsmenn til liðs við félagið, þau Björg Ólafsdóttir, Einar Örn Gizzurarson, Guðleif Harðardóttir, Hallgrímur Þormarsson & Ólafur Ragnar Ólafsson.

Bjóðum þau velkomin í starfið, glæsilegur hópur þar á ferð.

Fimmtudagsfræðsla: Frammistaða & Afköst

Á Fimmtudagsfræðslu JCI þann 14.10 mun Gunnar Jónatansson senator og framkvæmdastjóri IBT á Íslandi deila með JCI félögum og áhugasömum ýmsu í tengslum við tímastjórnun.   Gunnar hefur starfað sem leiðbeinandi um árabil auk þess sem hann hefur mikla reynslu úr atvinnulífinu.
Erindi Gunnars nefnist  Frammistaða og afköst/ Managing power, focus and energy !

Um námskeiðið segir :

Öll vinna fer fram í tíma og tekur tíma. Árum saman hafa stjórnendur og starfsmenn leitað leiða til að stjórna tímanum með litlum sem engum árangri. Tímanum munum við aldrei geta stýrt, hann bara líður. Þessari vinnustofu er ætlað að opna augu þátttakenda  fyrir stjórnanlegum þáttum til að bæta afköst og gæði vinnu.
Frammistaða og afköst er vinnustofa þar sem þátttakendur gera sér betur grein fyrir í hvað tíma þeirra er best varið, og hvernig þeir geta tekið yfir stjórnina í stað þess að láta áreitið stjórna sér.

Fimmtudagsfræðslan hefst kl:20:00  í JCI Húsinu Hellusundi 3, námskeiðið er öllum opið meðan að húsrúm leyfir.


Designed by: Business Web Hosting | Thanks to Buy Icons, travel tips and Used Cars